melaskoli_litill
Hagamelur 1, 107 Reykjavík
 S: 535-7500 
Skrifstofan er opin
kl. 8:00-12:30
og kl. 13:00-15:00

Matseðill dagsins


Mánudagurinn 06.02.2012
Hádegismatur: steiktur fiskur, kartöflur, grænmeti og ávxtur

Translator

6h

skolahljomsveit
Hundraðdagahátið í 1. bekk Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 30 janúar 2012 11:00

Fimmtudaginn 26. janúar héldu fyrstu bekkingar í Melaskóla hátíðlegan 100. skóladaginn. Nemendur mættu í skólann á náttfötunum og gerðu sér dagamun. Þeir töldu upp á 100 á talnagrindunum sínum, bjuggu til kórónur og lögðu á hlaðborð 100 smánestisbita sem þeir töldu í heimanámi. Að loknum frímínútum var farið í skrúðgöngu um ganga skólans þar sem börnin sungu með hárri raust „Þorraþræl“ við gítarundirleik Svenna smíðakennara. Þau mynduðu einnig töluna 100 í skálanum þar sem þau sungu „Höfuð, herðar, hné og tær“ með tilheyrandi hreyfingum og „Þegar hnígur húm að þorra“. Að lokum leystu börnin nokkrar þrautir út frá tölunni 100.

 
Melapósturinn heilsar nýju ári Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 12 janúar 2012 15:13

melaposturs2Melapósturinn er kominn út í annað sinn á skólaárinu. Efni er fjölbreytt að vanda, viðtöl við nemendur, bókagagnrýni og brandarar að ógleymdu svari skólastjóra við opnu bréfi nemendaráðsins sem birt var í síðasta tölublaði. Melapóstinn má nálgast hér eða með því að smella á myndina. Að venju verður líka hægt að skoða hann á bókasafni skólans.

 
Heilahristingur á bókasafni Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 12 janúar 2012 14:14

heilahristingurHeilahristingur er heimanámsaðstoð við nemendur í grunnskólum og á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti. Tilgangur verkefnisins er að styðja og styrkja nemendur í námi sínu og kynna þeim þá þjónustu sem bókasafnið býður upp á í tengslum við nám, áhugamál, tómstundir og annað.

Heimanámsaðstoðin er krydduð með ýmsum skemmtilegum uppákomum, s.s. dansi, kvikmyndasýningum og tónlist. Megináhersla er lögð á að bjóða gott umhverfi

Lesa meira...
 
Námsleikir fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 09 janúar 2012 11:27

paxel123PAXEL123.com vefurinn er ætlaður nemendum á leik- og grunnskólaaldri sem eru að stíga sín fyrstu skref í því að vinna með orð og hugtök tengd móðurmáli og stærðfræði. Markmiðið er að örva með tölvuleikjum læsi í stærðfræði og móðurmáli.

Leikirnir á PAXEL123.com örva formskynjun, talnaskilning og rökhugsun auk þess sem þar er að finna rímleiki og stafarugl. Leikirnir henta einnig sem ítarefni við sérkennslu þ.m.t. að vinna með börnum af erlendum uppruna.

Umfjöllun um vefinn og viðtal við höfund verkefnisins, Önnu Margréti Óafsdóttur leikskólastjóra í Nóaborg, var í síðasta tölublaði Skólavörðunar sem má nálgast hér.

 
Velkomin úr jólaleyfi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 04 janúar 2012 08:48

melaskoli jol

 

 

Kennsla er  hafin á ný að loknu jólaleyfi í dag  þann 4. janúar kl. 8:30.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 23